Skilmálar
Almennt:
Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Krot.is
Um notkun vefsíðu og vefverslun Krot.is gilda eftirfarandi skilmálar:
Með því að nota vefsíðu og vefverslun Krot.is samþykkir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, skilmála þessa eins og þeir eru að hverju sinni.
Kt. 101092-2249, Fróðengi 16. Símanúmer er 865-2342.
Krot.is áskilur sér rétt til þess að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.
Verð:
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur.
Krot.is áskilur sér rétt til þess að hætta við pantanir t.d. vegna rangra verðupplýsinga ásamt því að breyta verðum eða hætta með ákveðnar vörutegundir fyrirvaralaust. Athuga að verð geta hækkað fyrirvaralaust vegna gengishækkunar á erlendri vöru.
Vörur til einkanota:
Vörur í vefverslun Krot.is eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum Krot.is án tilskilinna leyfa. Krot.is áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.
Nákvæmni upplýsinga:
Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Tilvik geta átt sér stað þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun er að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.
Greiðsla:
Krot.is er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt. Allar greiðslur fyrir vörur gegnum vefverslun fara í gegnum greiðslugátt Verifone.
Lög og varnarþing:
Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.